miðvikudagur, 26. september 2007

Nenni ekki....

Ætla í bloggpásu....

fimmtudagur, 13. september 2007

Vinna, vinna, vinna....

Þá er önnur vikan á skurðstofunni að verða búin. Ég er rosalega ánægð og líst vel á þetta. Á samt enn eftir að læra mikið en það kemur allt með þolinmæðinni ;) Dagurinn í dag var dáldið erfiður andlega en það er nú víst þannig þegar maður er hjúkrunarfræðingur, skiptast á skin og skúrir.
Ég er líka aðeins að venjast því að vera farin að vinna, var ekkert svo þreytt í dag og í gær en dagarnir þar á undan voru ansi erfiðir. Tekur á að byrja allt í einu í 100% vinnu eftir langt hlé, sérstaklega vinnu þar sem maður þarf að læra nánast allt frá grunni.
Ég er aðeins farin að standa skrúbbuð við aðgerðir, hef t.d. staðið tvisvar við keisara og rétt áhöld, en þó með aðra hjúkkur mér við stuðnings. Ekkert smá gaman :D

Læt að lokum fylgja þessa ótrúlega krúttlegu mynd af apa og dúfu sem eru bestu vinir. Hér má sjá fréttina :)

mánudagur, 3. september 2007

Fyrsti vinnudagurinn

Dagurinn byrjaði ekkert allt of vel. Mér fannst Hringur vera heldur heitur þegar ég tók hann uppúr rúminu sínu. Jújú...kominn með yfir 38 stiga hita, alveg týpískt! þannig að Bjössi var bara heima með guttaling og ég dreif mig í vinnuna. Þar var vel tekið á móti mér og ég kynnt fyrir öllum og deildin skoðuð. Fór svo aðeins inní laparoscopiu þar sem verið var að fjarlægja blöðru á eggjastokk. Því næst fór ég og horfði á keisaraskurð. Þar sá ég lítinn dreng mæta í heiminn, ekki amalegt það :D Eftir það var komið hádegi og ég fékk leyfi til að fara heim enda búin að þurfa að meðtaka nóg þennan daginn.
Mér líst bara vel á þetta, greinilega nóg að læra og tekur ábyggilega nokkra mánuði að koma sér inní þetta.

föstudagur, 31. ágúst 2007

Dagmamma

Þá er Hringur byrjaður hjá dagmömmunni. Það gekk ekkert voðalega vel fyrstu vikuna, hann grét mikið þegar ég fór og stoppaði hann því stutt í einu. Einn daginn sótti ég hann þegar hann var búinn að vera í hálftíma og þá var hann kófsveittur og eldrauður í framan því hann var búinn að gráta svo mikið :( Núna seinni vikuna hefur þetta gengið mjög vel. Svo var þetta bara alveg komið á miðvikudag, þá var hann alveg sáttur. Grætur reyndar alltaf þegar ég fer með hann en hann er fljótur að jafna sig. Mér finnst hálf kjánalegt að sitja hér heima og horfa út í loftið á meðan hann er í pössun. En hann verður víst að venjast þessu þar sem ég byrja að vinna á mánudaginn. Annars líst mér bara rosalega vel á dagmömmuna og ég held að honum eigi eftir að líða vel hjá henni :) Hún er duglega að fara með krakkana út að leika en fyrri dagmamman sem ég skoðaði hjá sagðist aldrei fara með krakkana út :/ Hann sefur svo bara inni hjá henni, hún er með tvö rimlarúm og sefur Hringur og annar strákur í þeim og svo sofa tvö börn úti. Það finnst mér fínt því hann er vanur að sofa inni. Það hefur gengið vel að svæfa hann, hann hefur tekið ástfóstri við koddann sem er í rúminu, dregur hann víst með sér út um allt :)
Jæja segi þetta gott af dagmömmufréttum. Styttist í vinnu hjá manni, spennó spennó!! Læt heyra í mér í vikunni hvernig ég fíla mig þar :)

miðvikudagur, 22. ágúst 2007

Mom jeans


Snilldar atriði úr saturday night live :D

föstudagur, 17. ágúst 2007

Spennandi tímar fram undan....

Komin 17.ágúst sem þýðir að eftir 3 daga byrjar Hringur í aðlögun hjá dagmömmunni og eftir 16 daga byrja ég að vinna! Komin smá spenningur í mann en líka pínu stress, alltaf smá stressandi að byrja í nýrri vinnu. En þetta leggst vel í mig og ég er bjartsýn á að ég eigi eftir að finna mig í skurðhjúkrun, vona það allavega. Kvíður náttúrulega fyrir að fara frá Hring en ég held að það sé komin tími á það, höfum held ég bæði gott af því, hann að fá að umgangast önnur börn og ég að vera innan um fullorðið fólk :)
Baðherbergisframkvæmdirnar virðast engan enda ætla að taka.... jújú, þetta er nú aðeins farið að ganga. Pabbi Bjössa kom í gær og tengdi blöndunartækið fyrir baðið, setti borðplötu á innréttinguna og setti vaskinn í. Þannig að í gær fórum ég og Magnús í bað sem var ótrúlega ljúft :)
Á morgun tekur Magnús Ari þátt í Latabæjarhlaupinu og er mikil spenna í gangi fyrir það. Hann hleypur 1 km og Bjössi hleypur með honum. Ég og Hringur sjáum um að hvetja á hliðarlínunni ;) Svo er Bjössi að spila með Sometime kl 20.30 fyrir utan búðina KVK sem er í bakhúsi við hliðina á kaffihúsinu 10 dropum. Allir að kíkja á það!! :D

föstudagur, 10. ágúst 2007

Hahahha....

Hvað getur maður sagt?

þriðjudagur, 7. ágúst 2007

miðvikudagur, 1. ágúst 2007

Flutt

Þá erum við fjölskyldan flutt í nýju íbúðina og erum við mjög ánægð með það. En framkvæmdirnar á baðinu eru sko ekki búnar. Kom smá bakslag, kallinn var búinn að leggja mosaik flísar á eiginlega allan klósettkassann en svo var það bara alls ekki nógu vel gert þannig að það þurfti að rífa það allt af :/ En nú er kominn annar flísari í verkið og lítur þetta strax mun betur út. Maður þarf bara að vera þolinmóður að vera með einhvern vinnumann inná sér og reka hann út ef maður þarf að fara á dolluna :Þ
Ákvað að setja inn fyrir-eftir mynd eins og staðan er núna, set svo aftur þegar allt er reddí ;) Getið klikkað á myndirnar til að sjá þær stærri.


miðvikudagur, 25. júlí 2007

Allt að gerast....

....í íbúðarmálunum. Baðherbergið er nú aðeins farið að taka á sig smá mynd, ekki seinna vænna þar sem við ætlum að flytja á sunnudaginn! Erum búin að flytja eitthvað af dóti eins og geymsluna og slatta af kössum. Er búin að losa marga kassa líka, farin að setja dót í eldhúsið og fataskápana :) Mikil tilhlökkun í gangi að flytja enda fyrst íbúðin sem við kaupum :)
Nú er bara að vona að sem mest verði búið fyrir sunnudaginn svo maður þurfi ekki að vera með iðnaðarmenn stanslaust inná sér :/
Hér má sjá hvernig baðherbergið lítur út í dag :) Set svo inn fyrir - eftir myndir þegar allt er reddí ;)

laugardagur, 21. júlí 2007

Tannfréttir















Hringur er að taka tennur þessa dagana, komnar
átta, fjórar uppi og fjórar niðri. Tanntakan fer alltaf illa í hann og þarf ég oftast að gefa honum stíl. En það líður oftast fljótt hjá, virðist bara vera þegar þær eru að brjótast í gegn.
Stóri drengurinn missti hinsvegar sínu fyrstu tönn núna í kvöld. Mikil gleði í bland við smá geðshræringu þegar hann sá blóðið! En nú sefur hann vært með eina tönn undir kodda og bíður tannálfsins með eftirvæntingu :)

Hafsteinn Jonsson í Svíþjóð!

Samkvæmt þessari frétt á pabbi alnafna í Karlstad í Svíþjóð :D

fimmtudagur, 12. júlí 2007

Litla krúttið mitt


Segir hann ekki örugglega "mamma" þegar ca 13 sek eru eftir?? :D

fimmtudagur, 5. júlí 2007

Nýjustu tölur

Hringur fór í 12 mánaða skoðun í dag og er kappinn orðinn 10.460 gr og 82.5 cm, algjör lengja sem sagt :) Það gæti verið að hann þurfi að fara í sjúkraþjálfun, hjúkkunni finnst hann dáldið seinn í hreyfiþroska. Hún ætlar að ræða þetta við lækni og sjá hvað hún segir. Hann stendur t.d. voða stutt í fæturnar í einu og er ekkert farinn að reyna að hífa sig upp sjálfur þannig að hann gæti þurft að fara í nokkra tíma til að ýta aðeins við honum.

Annars er allt ágætt að frétta, framkvæmdirnar á íbúðinni mjakast áfram, gengur samt allt of hægt finnst mér. Erum enn að bíða eftir pípara sem sagðist ætla að koma seinasta mánudag en hefur ekki enn látið sjá sig :( En þetta hefst á endanum, hlakka ekkert smá til :)

Að lokum læt ég fylgja hér link á fyrsta hlutann af heimildarmynd sem ég horfði á um daginn og fjallar um fegurðarsamkeppnir barna í Bandaríkjunum. Þetta er í 9 hlutum þannig að ef ykkur leiðist þá er tilvalið að eyða tíma í þessa merkilegu mynd. Þetta er ótrúlega sick!!

mánudagur, 2. júlí 2007

Afmæli





Í dag eiga Hemmi bróðir og Herborg afmæli. Óska þeim innilega til hamingju með daginn :D

föstudagur, 29. júní 2007

Hringur 1 árs

Komið ár síðan Hringur ákvað að drífa sig í heiminn öllum að óvörum. Ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt enda höfum við haft það rosalega gott saman og verður skrítið að fara að vinna eftir rétt rúma tvo mánuði. Læt hér fylgja tvær myndir af honum, eina af honum fljótlega eftir komuna heima af vökudeild og eina nýlega :)

Æ hvað maður er lítill :)

Sæti :)

sunnudagur, 24. júní 2007

laugardagur, 23. júní 2007

Devil´s dog

Fannst engum Ellen fyndin? Allavega meig ég næstum í mig úr hlátri, sérstaklega af skokkatriðinu. Allavega húmor að mínu skapi :D
Ég var að lesa um keppnina world´s ugliest dog og rakst á vinningshafann frá því í fyrra og ég held ég fái nú bara martröð í nótt, sá sem vann í ár er nú bara bjútí miðað við þennan sem btw dó í fyrra annars hefði hann nú án efa unnið aftur.

sunnudagur, 17. júní 2007

Ellen er best....


....fyrri helmingurinn er of fyndinn!

laugardagur, 9. júní 2007

Jibbí!

Fengum íbúðina afhenta áðan þannig að nú er bara að bretta upp ermarnar og hefjast handa við að rífa allt út af baðherberginu og flísarnar af gólfinu á ganginum :) Sem sagt stuð framundan!