Hringur fór í 12 mánaða skoðun í dag og er kappinn orðinn 10.460 gr og 82.5 cm, algjör lengja sem sagt :) Það gæti verið að hann þurfi að fara í sjúkraþjálfun, hjúkkunni finnst hann dáldið seinn í hreyfiþroska. Hún ætlar að ræða þetta við lækni og sjá hvað hún segir. Hann stendur t.d. voða stutt í fæturnar í einu og er ekkert farinn að reyna að hífa sig upp sjálfur þannig að hann gæti þurft að fara í nokkra tíma til að ýta aðeins við honum.
Annars er allt ágætt að frétta, framkvæmdirnar á íbúðinni mjakast áfram, gengur samt allt of hægt finnst mér. Erum enn að bíða eftir pípara sem sagðist ætla að koma seinasta mánudag en hefur ekki enn látið sjá sig :( En þetta hefst á endanum, hlakka ekkert smá til :)
Að lokum læt ég fylgja hér link á fyrsta hlutann af heimildarmynd sem ég horfði á um daginn og fjallar um fegurðarsamkeppnir barna í Bandaríkjunum. Þetta er í 9 hlutum þannig að ef ykkur leiðist þá er tilvalið að eyða tíma í þessa merkilegu mynd. Þetta er ótrúlega sick!!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Já, það má segja það að Hringur sé algjör lengja!!! hehehe.... Inga var 74,5 cm eins árs:) Verður peð eins og mamma sín! hehehe...
Skrifa ummæli