laugardagur, 21. júlí 2007

Tannfréttir















Hringur er að taka tennur þessa dagana, komnar
átta, fjórar uppi og fjórar niðri. Tanntakan fer alltaf illa í hann og þarf ég oftast að gefa honum stíl. En það líður oftast fljótt hjá, virðist bara vera þegar þær eru að brjótast í gegn.
Stóri drengurinn missti hinsvegar sínu fyrstu tönn núna í kvöld. Mikil gleði í bland við smá geðshræringu þegar hann sá blóðið! En nú sefur hann vært með eina tönn undir kodda og bíður tannálfsins með eftirvæntingu :)

2 ummæli:

herborg sagði...

Var tannálfurinn ekki góður við Magnús:)??

Maja sagði...

Hann fékk heilar 300 krónur og var hæstánægður með það :)