föstudagur, 29. júní 2007

Hringur 1 árs

Komið ár síðan Hringur ákvað að drífa sig í heiminn öllum að óvörum. Ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt enda höfum við haft það rosalega gott saman og verður skrítið að fara að vinna eftir rétt rúma tvo mánuði. Læt hér fylgja tvær myndir af honum, eina af honum fljótlega eftir komuna heima af vökudeild og eina nýlega :)

Æ hvað maður er lítill :)

Sæti :)

2 ummæli:

herborg sagði...

sæti sæti afmælisstrákur:)!!

smá stærðarmunur á einu ári!!!! heheh

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með drenginn, algjört krútt! ;)
Anna Sig.