Dagurinn byrjaði ekkert allt of vel. Mér fannst Hringur vera heldur heitur þegar ég tók hann uppúr rúminu sínu. Jújú...kominn með yfir 38 stiga hita, alveg týpískt! þannig að Bjössi var bara heima með guttaling og ég dreif mig í vinnuna. Þar var vel tekið á móti mér og ég kynnt fyrir öllum og deildin skoðuð. Fór svo aðeins inní laparoscopiu þar sem verið var að fjarlægja blöðru á eggjastokk. Því næst fór ég og horfði á keisaraskurð. Þar sá ég lítinn dreng mæta í heiminn, ekki amalegt það :D Eftir það var komið hádegi og ég fékk leyfi til að fara heim enda búin að þurfa að meðtaka nóg þennan daginn.
Mér líst bara vel á þetta, greinilega nóg að læra og tekur ábyggilega nokkra mánuði að koma sér inní þetta.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
ohh ég vildi að ég gæti séð keisarafæðinguna mína á video... :) eða bara ljósmynd af þegar hann var tekinn upp úr maganum..
Mér finnst keisarafæðing ansi brútal eitthvað. Legið togað í sundur með handafli svo þrýstir einn læknir á bumbuna (næstum leggst á hana) á meðan hinn læknirinn togar barnið út....en það gleymist þegar krílið kemur og byrjar að gráta :)
Frábært að starfið leggst vel í þig. Týpískt að Hringur skuli verða veikur þegar þú ferð að vinna heheh, var líka þannig hjá mér ;). Vona að honum batni samt sem fyrst...
ok.. bara ljósmynd af mómentinu þegar hann kom upp úr skurðinum þá :)
:) gott að þér líst vel á djobbið:)
Skrifa ummæli