Þá eru jólin afstaðin. Þau voru í alla staði mjög ljúf hjá okkur og búið að borða mikið af hátíðarmat og sælgæti og er nóa konfekt þar fyrst í flokki :) Skötuboðið var skemmtilegt og skatan góð, meira að segja Bjössi fékk sér en Magnús lagði ekki í hana og Hringur er full ungur en stefnan er að hann smakki á næsta ári ;) Á aðfangadag var möndlugrautur í hádeginu hjá okkur og fékk ég möndluna að þessu sinni og í verðlaun hlaut ég yatzy, Elf á dvd og konfekt. Um kvöldið var svo snæddur kalkúnn og mokkamús a la pabbi í eftirrétt, allt saman mjög ljúffengt. Magnús var í essinu sínu við pakkaopnunina og var opnað af mikilli áfergju. Hann fékk fullt af flottu dóti og Hringur einnig. Magnús sá um að opna pakkana hans Hrings á meðan Hringur át krulluböndin :) Hangikjötið var svo borðað á jóladag með öllu tilheyrandi og var spilað á hrútaspil og einn kani tekinn :) Á annan dag jóla héldum við til pabba Bjössa og Elínar konu hans þar sem hálfgert hlaðborð var í boði, og enn og aftur át maður yfir sig! Stefnan er tekinn á smá átak í janúar, enda vigtin farin að stíga uppá við eftir hátíðarnar. Bjössi verður í fæðingarorlofi allan janúar og verður það mjög ljúft hjá okkur, og ætlum við að reyna að vera dugleg í göngutúrum ef veður leyfir! :)
miðvikudagur, 27. desember 2006
Jólin búin

föstudagur, 22. desember 2006
Flugdrekahlauparinn
Kláraði The Kite Runner í gærkvöldi. Frábær bók, vel skrifuð og falleg en á köflum átakanleg saga sem gefur góða mynd af lífinu í Afganistan fyrir og eftir stríð. Gef henni 4 stjörnur af fjórum mögulegum :)
fimmtudagur, 21. desember 2006
Líður að jólum
Aldeilis stutt í jólin! Allt að verða reddí á þessum bæ, búið að versla allar gjafir (Bjössi er í þessum skrifuðu orðum að versla mína gjöf, sem er síðasta gjöfin) og jólakortin farin í póst. Nú bíður maður bara eftir að hátíðin gangi í garð. Á morgun er hin árlega skötuveisla með systkinum mömmu, en mamma ákvað að hafa hana á morgun í stað þorláksmessu. Hún kom og passaði Hring aðeins í dag, var þá nýkomin úr fiskbúðinni að kaupa skötuna og hún gjörsamlega angaði af skötulykt :Þ Hlakka mikið til, alltaf viss stemning að fá sér skötu. Bjössi er meira að segja búinn að lofa að fá sér bita enda ekki annað hægt í þessari vestfirsku fjölskyldu :)
Magnús er orðinn verulega spenntur og telur niður dagana í jólin, það verða heldur ekki amaleg jól hjá honum, hann fær að opna pakkana hans Hrings líka! Sem sagt nóg að gera hjá honum :)
Gleðileg jól allir saman! :D

laugardagur, 16. desember 2006
Jólatré
Skelltum okkur í Garðheima í dag og fjárfestum í þessu jólatré. Höfum alltaf verið með gervitré en fannst tími til kominn að vera með alvöru. Sjáum sko ekki eftir því, grenilyktin farin að sveima um íbúðina, sem er náttúrulega bara jólalegt :) Á morgun er stefnan tekin á að skreyta blessað tréið.
föstudagur, 8. desember 2006
Why??
Ég fæ alltaf illt í hjartað og sting í magann þegar ég les svona fréttir :(
En svona á léttari nótum þá er fyrirhugað jólaglögg hjá Herborgu og Bjössa annaðkvöld. Ætlum við skötuhjú að skella okkur, en mamma Bjössa ætlar að sitja yfir gaurunum, vonandi haga þeir sér vel ;) Reyndar erum við bæði búin að vera að drepast úr ógleði í dag, og kom Bjössi heim úr vinnunni. En ég er að vona að það líð bara hjá svo við komumst í jólagleðina :)

fimmtudagur, 7. desember 2006
mánudagur, 4. desember 2006
Djammedídjamm
Nú styttist aldeilis í jólin, fyrsti í aðventu bara komin og farin, ótrúlegt! Á laugardaginn fór ég á jólahlaðborð með hjúkkubekknum mínum en það var haldið í heimahúsi. Það var mjög gaman, við héldum litlu jólin með því að hver kom með pakka svo drógum við númer og opnuðum herlegheitin. Innihald þeirra var úr öllum áttum, sem dæmi má nefna reykelsi, dvd, konfekt, jólaskraut og sleipiefni! hehe... Maturinn var fínn og eftir hann tók við drykkja og spjall. Í boði var áfengisbolla sem reyndist nú vera ansi hættuleg. Í henni voru jarðaber og appelsínubitar sem höfðu legið í vodka í sólarhring. Maður úðaði í sig appelsínubitunum áður en haldið var í bæinn enda var maður fullur eftir því :/ En samt sem áður brjálað stuð, vorum á barnum sem ég er alveg að fíla, fínn staður. Var ekki komin heim fyrr en um 6 um morgunin! Einhver hafði stolið debet- og kreditkortinu mínu en sem betur fer var ég með henni Hrafnhildi sem lánaði mér pening til að komast heim (bauð mér meira að segja uppá pulsu :)) Þegar ég hringdi í euro um nóttina til að láta loka kortinu var mér sagt að seinasta færslan á kortinu væri frá hressingarskálanum. Þjófurinn hefur ss tekið kortið þangað og farið á barinn bölvaður!
Sunnudagurinn fór því bara í þynnku og leiðindi, stefni að því að gera eitthvað jólalegt og skemmtilegt með fjölskyldunni næstu helgi, ekkert meira djamm fyrir jól! :)
Sunnudagurinn fór því bara í þynnku og leiðindi, stefni að því að gera eitthvað jólalegt og skemmtilegt með fjölskyldunni næstu helgi, ekkert meira djamm fyrir jól! :)
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)