miðvikudagur, 27. desember 2006

Jólin búin

Þá eru jólin afstaðin. Þau voru í alla staði mjög ljúf hjá okkur og búið að borða mikið af hátíðarmat og sælgæti og er nóa konfekt þar fyrst í flokki :) Skötuboðið var skemmtilegt og skatan góð, meira að segja Bjössi fékk sér en Magnús lagði ekki í hana og Hringur er full ungur en stefnan er að hann smakki á næsta ári ;) Á aðfangadag var möndlugrautur í hádeginu hjá okkur og fékk ég möndluna að þessu sinni og í verðlaun hlaut ég yatzy, Elf á dvd og konfekt. Um kvöldið var svo snæddur kalkúnn og mokkamús a la pabbi í eftirrétt, allt saman mjög ljúffengt. Magnús var í essinu sínu við pakkaopnunina og var opnað af mikilli áfergju. Hann fékk fullt af flottu dóti og Hringur einnig. Magnús sá um að opna pakkana hans Hrings á meðan Hringur át krulluböndin :) Hangikjötið var svo borðað á jóladag með öllu tilheyrandi og var spilað á hrútaspil og einn kani tekinn :) Á annan dag jóla héldum við til pabba Bjössa og Elínar konu hans þar sem hálfgert hlaðborð var í boði, og enn og aftur át maður yfir sig! Stefnan er tekinn á smá átak í janúar, enda vigtin farin að stíga uppá við eftir hátíðarnar. Bjössi verður í fæðingarorlofi allan janúar og verður það mjög ljúft hjá okkur, og ætlum við að reyna að vera dugleg í göngutúrum ef veður leyfir! :)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæhæ

Þið hafið haft það gott :) Ég hef einu sinni gert kalkún en hann var bara ekki góður (fyllingin horror) og ég hef ekki haft í mér að prófa aftur...en langar svo hehe.

Flott mynd af ykkur.

kveðja til ykkar
Íris og fjölsk