mánudagur, 4. desember 2006

Djammedídjamm

Nú styttist aldeilis í jólin, fyrsti í aðventu bara komin og farin, ótrúlegt! Á laugardaginn fór ég á jólahlaðborð með hjúkkubekknum mínum en það var haldið í heimahúsi. Það var mjög gaman, við héldum litlu jólin með því að hver kom með pakka svo drógum við númer og opnuðum herlegheitin. Innihald þeirra var úr öllum áttum, sem dæmi má nefna reykelsi, dvd, konfekt, jólaskraut og sleipiefni! hehe... Maturinn var fínn og eftir hann tók við drykkja og spjall. Í boði var áfengisbolla sem reyndist nú vera ansi hættuleg. Í henni voru jarðaber og appelsínubitar sem höfðu legið í vodka í sólarhring. Maður úðaði í sig appelsínubitunum áður en haldið var í bæinn enda var maður fullur eftir því :/ En samt sem áður brjálað stuð, vorum á barnum sem ég er alveg að fíla, fínn staður. Var ekki komin heim fyrr en um 6 um morgunin! Einhver hafði stolið debet- og kreditkortinu mínu en sem betur fer var ég með henni Hrafnhildi sem lánaði mér pening til að komast heim (bauð mér meira að segja uppá pulsu :)) Þegar ég hringdi í euro um nóttina til að láta loka kortinu var mér sagt að seinasta færslan á kortinu væri frá hressingarskálanum. Þjófurinn hefur ss tekið kortið þangað og farið á barinn bölvaður!
Sunnudagurinn fór því bara í þynnku og leiðindi, stefni að því að gera eitthvað jólalegt og skemmtilegt með fjölskyldunni næstu helgi, ekkert meira djamm fyrir jól! :)

2 ummæli:

Unknown sagði...

Miklu betra blogg Maja mín...Nú skal ég sko fara að commenta hjá þér hehehe....

Bjössi sagði...

já þetta er miklu betra ;)