föstudagur, 29. júní 2007

Hringur 1 árs

Komið ár síðan Hringur ákvað að drífa sig í heiminn öllum að óvörum. Ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt enda höfum við haft það rosalega gott saman og verður skrítið að fara að vinna eftir rétt rúma tvo mánuði. Læt hér fylgja tvær myndir af honum, eina af honum fljótlega eftir komuna heima af vökudeild og eina nýlega :)

Æ hvað maður er lítill :)

Sæti :)

sunnudagur, 24. júní 2007

laugardagur, 23. júní 2007

Devil´s dog

Fannst engum Ellen fyndin? Allavega meig ég næstum í mig úr hlátri, sérstaklega af skokkatriðinu. Allavega húmor að mínu skapi :D
Ég var að lesa um keppnina world´s ugliest dog og rakst á vinningshafann frá því í fyrra og ég held ég fái nú bara martröð í nótt, sá sem vann í ár er nú bara bjútí miðað við þennan sem btw dó í fyrra annars hefði hann nú án efa unnið aftur.

sunnudagur, 17. júní 2007

Ellen er best....


....fyrri helmingurinn er of fyndinn!

laugardagur, 9. júní 2007

Jibbí!

Fengum íbúðina afhenta áðan þannig að nú er bara að bretta upp ermarnar og hefjast handa við að rífa allt út af baðherberginu og flísarnar af gólfinu á ganginum :) Sem sagt stuð framundan!

þriðjudagur, 29. maí 2007

Það sem maður lendir ekki í.....

Ég er farin að halda að ég eigi bara að halda mig innandyra þessa dagana. Ég virðist laða að mér hið furðulegasta fólk. Hér koma dæmin:
1. Bykoperrinn sem ég bloggaði um fyrir skemmstu.
2. Barnaperrinn sem braust inní blokkina og reyndi að komast inní íbúðina.
3. Ég fór á djammið á sunnudaginn með Eddu vinkonu. Við enduðum djammrúntinn á Ölstofunni þar sem við hittum ungan mann sem fór að spjalla við okkur og settumst við saman inn. Okkur leist vel á hann í fyrstu, huggulegur ungur piltur og skemmtilegur þar að auku (tek það fram að Edda er á lausu). Þegar líður á nóttina verður gaurinn dáldið fullur og við svona hættum að fíla hann og ákváðum bara að fara að koma okkur. Ég man nú ekki alveg hvað ég sagði við gaurinn en allt í einu snappar hann svona líka svakalega og nánast öskrar á mig "ert´ekki að fokking djóka í mér?, ertu búinn að vera að draga mig á asnaeyrunum síðustu tvo tímana!" Mér brá nú heldur betur í brún og reyndi að róa hann en það gekk ekki svo að við flúðum út í ofboði og náðum í leigubíl. Ég hélt í alvöru að gaurinn ætlaði að berja mig!
4. Nú kemur rúsínan í pylsuendanum. Ég var í göngutúr um hverfið með Hring áðan og skyndilega vindur sér upp að mér gömul tannlaus kona sem fer að röfla um ljósleiðara og skaðsemi loftneta!!

Hvað verður það næst??

föstudagur, 25. maí 2007

Magnús Ari 5 ára

Nú er 25.maí genginn í garð sem þýðir að Magnús Ari minn er orðinn 5 ára :) Af því tilefni tók ég saman myndir frá öllum fyrrum afmælisdögum hans.

1 árs gutti

2 ára

3 ára á fyrsta hjólinu

4 ára og mikill spenningur í loftinu ;)

Stóri fallegi strákurinn minn orðinn 5 ára :)