Sá umræðu á barnalandi um fermingar og kostnað við þær og ég varð eiginlega orðlaus. Það er greinilegt að maður þarf að fara að stofna fermingarsjóð, enda ekki nema 8 ár þangað til Magnús fermist :Þ Hér eru dæmi af barnalandi:
-Föt á alla fjölskylduna 110.000 kr.-
Klipping fyrir alla 20,000 kr.-
Salur og veitingar 250,000 kr.-
Blómakreytingar 10,000kr.-
Borðskraut, fermingarstytta og konfekt 30,000 kr.-
kerti,gestabók og servíettur 16,000 kr.-
Boðskort 15,000k kr.-
greiðsla og förðun á fermingardaginn 10,000 kr.-
gjöf frá systkinum 11,000 kr.-
gjöf frá okkur 130,000 kr.-
plokkun og litun 3,000 kr.-
Myndartakan er eftir og síðan er örugglega einhver auka kosnaður sem ég er að gleyma.
-Ég hugsa að með öllu sé þetta á bilinu 5-600,000-Ég reikna með ca. 400 þús. með gjöfinni.
Ein nefndi undirföt í kostnað, eehh... aldeilis hafa tímarnir breyst, þetta var hlutur sem maður spáði nákvæmlega ekkert í, hvað þá förðun eða gervineglur!