Ég rændi myndum úr albúminu hennar Silju Maríu og setti á barnalandssíðuna :) En þær eru teknar þegar við fórum í mat til Herborgar og Bjössa á föstudagskvöldið. Þar fengum við dýrindis kjúklingabringur sem veltar voru uppúr brauðmylsnu og parmesan, mmmm.... verð að fá uppskriftina. Horfðum svo á x-faktor og ég er ekki enn að ná hvað Guðbjörg er enn að gera þarna inni! En held að það sé augljóst að Jögvan vinni þetta, hann er allavega minn maður :)
Annars var lítið gert um helgina, ég leit aðeins út með Kristínu og Herborgu á laugardagskvöldið, sem var bara mjög fínt. Á laugardagsmorgun átti sá sorgaratburður sér stað að bróðir mömmu var bráðkvaddur. Manni finnst það hálf óraunverulegt bara. Afi lést í seinasta mánuði og finnst manni heldur hart að þurfa að horfast í augu við sorgina aftur :( Þeir feðgar verða svo jarðsettir saman á Akranesi.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli