miðvikudagur, 2. maí 2007

Kynferðisleg áreitni í Byko!

Í morgun fórum ég og Herborg í Byko til að skoða baðinnréttingar og flísar. Ég vildi forvitnast um hvað væri langur afgreiðslutími á innréttingunum svo að við settumst niður við eitt afgreiðsluborðið í mesta sakleysi og biðum eftir afgreiðslu. Eftir smá stund kemur askvaðandi maður milli fertugs og fimmtugs ef ég á að giska. Hann virkar voða hress og byrja ég á að spyrja um afgreiðslutímann. Þá segir hann "af hverju ertu ekki búin að hringja í mig?" Ég náttúrulega fer hjá mér og þá segir hann "þú ert svo sæt þegar þú roðnar". Ég fer þá enn meira hjá mér og segi að það sé nú ekki annað hægt þegar einhverju svona er slengt framan í mann. Þá fer hann að tala um afgreiðslufrestinn, svo leiðist talið út í að hann spyr hvar ég eigi heima og nr hvað í Hraunbænum það sé (með flagararöddinni) og ég spyr hvort það sé nauðsynlegt að gefa það upp. Hann hefði kannski bara mætt heim til mín ef ég hefði gefið það upp :/ Svo fer hann að tala um að ég geti fengið innréttinguna fyrr "af því að ég er komin svo nálægt honum" og rúsínan í pylsuendanum er þegar hann bendir á Hring og segir "er hann ekki líkur mér?" íííeeewww!!!! Hann lét svona eins og hann væri viðhaldið mitt *æl*
Ég er eiginlega bara í sjokki eftir þetta, virkilega ósmekklegt og ófagmannlegt að koma svona fram við viðskiptavin! Spurning hvort maður eigi að senda mail á starfsmannastjóra??

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

OMG ég myndi sko tala við einhvern um þetta :S

-S-

herborg sagði...

Þetta var einum of mikil steik!!

Nafnlaus sagði...

Ég myndi kvarta,

kv., árný

Maja sagði...

Ég sendi rétt í þessu kvörtun á verslunarstjórann ;)

Hemmi sagði...

Já.....fá afslátt :)

Nafnlaus sagði...

ojjj erðanú kríp!!! þú verður að láta okkur vita ef þú færð response!!
Anna Sig

Nafnlaus sagði...

ji dúdda mía er það nú gerpi, ég hefði nú örugglega bara labbað út. Ef ég þarf að versla við byko í framtíðinni þá læt ég Kjartan um það hehehe....

Maja sagði...

já ég og Herborg vorum einmitt að tala um það að við hefðu átt að labba út og segja eitthvað við þennan drullusokk. En maður brosti bara og var undrandi á þessu meðan á þessu stóð en eftir á að hyggja hefðum við náttúrulega átt að labba út.