miðvikudagur, 18. apríl 2007

Magnús stærðfræðiséni

Magnús borðar spagetti ber að ofan :)

Magnús fór í dag í talþjálfun þar sem var verið að greina hvernig málþroskinn væri hjá honum og framburður. Málþroskinn er alveg í meðallagi miðað við hans aldur en við þurfum að æfa hann í -r og -s hljóðum. Svo þurfti hann líka að reikna nokkur dæmi og stóð hann sig afburða vel á því sviði að sögn konunnar, hún hafði varla séð annað eins :) En hann hefur mikinn áhuga á tölum, þekkir alla tölustafina og tveggja stafa tölur líka. Höfum nú ekki verið að láta hann reikna mikið en eitthvað smá og hann var fljótur að ná því. Svo er hann snillingur í samstæðuspili, vonlaust að vinna hann í því. Hann er því greinilega með gott minni :)
Smá mont frá mömmunni ;)

3 ummæli:

Hemmi sagði...

fór nokkuð mikið spagetti á gólfið :p

Maja sagði...

Nei, hann er vaxinn uppúr því ;)

herborg sagði...

Gott að ég er ekki eini montrassinn:)

Ekki amalegt að vera góður í stærðfræði!