Heilsan er öll að koma til, er sprækari í dag en í gær. Átti að fara með Hring í 10 mánaða skoðun áðan en frestaði henni til morguns. Ég verð samt að skreppa aðeins út á eftir, því við skrifum undir kaupsamninginn á nýju íbúðinni í dag, jííhaa :D Hlakka til að vita hvenær við fáum afhent. En fyrir þá sem ekki vita þá erum við í leiguíbúð eins og er en festum kaup á íbúð hér í Hraunbænum fyrir skömmu. Fyrir utan það að hér er fasteignaverð mjög sanngjarnt að þá líður okkur mjög vel hér og ákváðum því að halda okkur við Árbæinn :) Ég er farin að sjá fyrir mér að verða svona soccer-mom, báðir strákarnir að spila með Fylki og ég að hvetja á áhorfendapöllunum (antisportistinn sjálfur), hihi :) Spurning hvort strákarnir verði antisportistar eins og foreldrarnir? En ég vil endilega að þeir stundi íþróttir og mun eindregið hvetja þá til þess.
Annars var ég að lesa bloggið hennar
Ilmar, sem var með mér í hjúkrun og það rann upp fyrir mér að ég hef ekki tekið neina afstöðu í kosningarmálunum. Hef ekki komið mér í það að kynna mér stefnumál flokkanna. Spurning um að fara að gera það enda stutt í kosningar!
Læt hér að lokum fylgja yfirlitsmynd af nýju íbúðinni ;)
2 ummæli:
Vííí spennandi, það verður gott þegar þið komist í ykkar eigin :)
Innilega til hamingju með íbúðina aftur ;). Við verðum örugglega að flytja á sama tíma. Hlakka til að heyra tölurnar úr skoðuninni hans Hrings hehehe....
Skrifa ummæli