Nýjustu tölur eru þær að kappinn er orðinn 9850 gr og 77 cm :) Annars var það engin sprauta í þetta sinn, bara læknisskoðun. Held að læknirinn sem skoðaði hann ætti nú bara að fara að íhuga að fara á eftirlaun, hann var ansi skjálfhentur. En hann kom bara vel út úr skoðuninni, þurfum bara að vera dugleg að örva grófhreyfingarnar hjá honum, hann stendur t.d. voða stutt í fæturnar í einu. En hann er aðeins farinn að mjaka sér áfram á rassinum ef hann sér eitthvað mjög spennandi. Mest spennandi finnst honum ef maður leggst á gólfið og byrjar að lesa bók í smá fjarlægð, þá er hann fljótur að koma :)
Það gekk annars vel að skrifa undir kaupsamninginn í gær og er stefnt á að við fáum afhent eigi síðar en 20.júní :) Flytjum þó ekki inn alveg strax, þurfum að mála íbúðina og svo ætlum við að rífa allt út af baðherberginu og fá allt nýtt þar inn. Annað þarf ekki að gera, eldhúsið var tekið í gegn fyrir 2 árum og er voða fínt. Læt hér fylgja eina mynd af því :)
4 ummæli:
Glæsilegt! hlakka til að fá eitthvað gómsætt hjá ykkur í nýja eldhúsinu í sumar.
Hehehe... hann Hringur er risi, alla vega miðað við Silju Maríu en hún var 72,5cm og 8330g í 10 mánaða skoðun ;O). Ekkert smá flott eldhús, hlakka til að koma mat hehe....
very cool:)
Hringur stendur sig vel á vigtinni:)
Vá þetta eldhús er svo girnilegt að ég gæti borðað það, eitt með öllu þeinkjúverínæs.
Til lukku með herlegheitin.
Um að gera að kynna sér kosningamálin, þau eru víst farin að koma manni sérdeilis mikið við þessi blessuðu fullorðinsmál ;).
Greinilegt að Magnús er orðinn algjör pjakkur! Ha, bara farinn að stelast út í búð að kaupa gotterí sjálfur, öss, þetta er fljótt að gerast sé ég. Jóhann Ási verður sennilega bara kominn þangað áður en ég næ að snúa mér hálfhring!
Sjáumst vonandi í Volare kynningunni hjá Petru 7.maí (sjá hjúkkubloggið).
Kv,
Ilmur
Skrifa ummæli