föstudagur, 30. mars 2007

Sápur

Eru sápuóperur ekki æðislegar? Er í þessum skrifuðu orðum að horfa á Bold and the Beautiful og þar er hún Stephanie að spjalla á fullu í öndunarvél! Well, ég stóð í þeirri meiningu að þegar einstaklingur er í öndunarvél gæti hann ekki talað. Þetta minnir mig á Mi Gorda Bella sem ég fylgdist með. Alltaf þegar einhver slasaðist, kannski mjög alvarlega og var vart hugað líf, þá lá sjúklingurinn alltaf með súrefni í nös og blóðþrýstingsmæli um upphandlegg. Og ekkert meira! Og við erum að tala um að þessi uppsetning var alltaf notuð, sama hvaða veikindi eða slys var um að ræða :)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hehehe... það er allt hægt í þessum sápuóperum ;)