þriðjudagur, 13. mars 2007

Akureyri

Akureyrarferðin var mjög fín hjá okkur Bjössa. Flugið gekk vel fyrir utan ágætis ókyrrð þegar við lækkuðum flugið inn Eyjarfjörðinn, mér var á tímabili hætt að lítast á blikuna :/ Á föstudeginum tókum við smá tjútt, byrjuðum á að borða á Strikinu þar sem við fengum fínan mat. Enduðum svo kvöldið á einhverjum klúbbi þar sem mjög fáir voru og við vorum lang elst, hehe. Laugardagurinn fór í tjill fram eftir degi, röltum um bæinn og kíktum í einhverjar búðir. Fengum okkur ljúffengar pizzur á Bautanum og skelltum okkur í bíó kl 6 á Norbit. Hún var nú frekar slök, maður var farin að bíða eftir að hún tæki enda, en maður gat nú eitthvað hlegið að henni ;) Um kvöldið fórum við svo að borða á La Vita e Bella. Þar fékk ég mér dýrindis forrétt sem samanstóð af hvítlaukssteikum portobello svepp með salati, mmmm...þvílíkt gott. Svo fékk ég mér lambakjöt og rauðvín með, voða gott allt saman. Eftir matinn fórum við bara á hótelherbergið og horfðum á sjónvarpið og fórum snemma í háttinn. Flugið heim gekk svo bara vel, smá ókyrrð hér og þar en ekkert miðað við ókyrrðina á leiðinni til Akureyrar.

Allt gekk vel hjá mömmu og pabba að passa. Hringur var dáldið rellinn enda að veikjast drengurinn. Fékk hita á sunnudagseftirmiðdaginn sem reyndar var horfinn daginn eftir. Hann er enn með ljótan hósta og nefrennsli. Svo kom morgungrauturinn uppúr honum áðan, vona að það sé ekki merki um gubbupest :/

Myndavélin okkar er víst bara ónýt, allavega of dýrt að gera við hana þannig að við þurfum sennilega að kaupa nýja :/ Læt hér fylgja nokkrar af Hring af símanum.



Ps. Andrea Gylfa bara búin að láta rétta tennurnar! Læt hér að því tilefni fylgja eina af mér með pre Andreu tennur sem ég keypti í Tiger :D


3 ummæli:

Anna sagði...

hahahaha viðurkenndu það bara, þetta eru þínar tennur! :)
Gaman að heyra að þið höfðuð það kósý um helgina!

Maja sagði...

Já ok ok! Þetta leyndarmál er búið að hvíla þungt á mér. Ég fór aldrei í tannréttingar hér í denn, það var allt cover up! Nú get ég loksins farið að brosa fyrst allir vita þetta :)

herborg sagði...

þú hefur greinilega aldrei falið þetta fyrir mér.....sýnt mér þitt eðlilega bros:) heeheh

Sætar myndir af Hring:)