Nýjustu tölur eru þær að Hringur er orðinn 9.4 kg og 75 cm á lengd :)Hann er því tveimur staðalfrávikum fyrir ofan meðaltal í lengd og einu í þyngd, alveg eins og Magnús var. Annars er allt er í orden hjá honum og er flottur strákur. Hann er samt ekkert að flýta sér að gera hlutina, rólegur eins og bróðir sinn :) En það eru alltaf framfarir og það er það sem skiptir máli.
Nú má ég fara að prófa að gefa honum fjölbreyttari álegg á brauð, hefur bara fengið smjör og lifrakæfu hingað til. Prófaði að gefa honum brauð með smjör og osti áðan og honum fannst það mjög gott. Svo kannski kaupir maður mysing og prufar það. Hann er enn aðallega að borða krukkumatinn í kvölmatinn en ég reyni að gefa honum það sama og við ef það er eitthvað við hæfi í matinn. Vorum með soðna ýsu og kartöflur um daginn og fannst honum það mjög gott.
Ef einhverjar hjúkkur lesa þetta blogg þá bað hjúkkan í skoðuninni mig um að láta það berast að það vantar hjúkkur á heilsugæsluna árbæ, og að mér skilst víðar, ef einhver hefur áhuga á því :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Vá það er aldeilis, Silja María var í 10 mánaða skoðun og var 8330g og 72,5cm hehehe..... ég var einmitt að kvarta yfir því að hún væri orðin svo þung að maður getur eiginlega ekki haldið á henni og pokum úr búðinni lengur ;O)
Heheh..já það er verulega farið að taka í ;)
þyngri og lengri en Inga! Inga var 9125g og 74,5 cm í eins árs skoðuninni:) hehe
;) Hringur risi
Skrifa ummæli