
Uppáhalds maturinn hans Hrings þessa dagana er grænmetis lasagna frá Hipp. Svo finnst honum æði þegar ég stappa saman banana og avakadó :)
Áðan gaf ég honum lax í jurtasósu frá Nestlé, sem honum fannst gott. Eins og sjá má á þessum skrifum er ég ekki mjög dugleg að búa sjálf til mat fyrir hann. Ég er einfaldlega ekki svo myndarleg húsmóðir ;) Agalega þægilegt að grípa í krukkumatinn, þó hann sé dáldið dýr. Ég hef aðallega verið að kaupa lífrænt ræktaðan mat, mér finnst úrvalið vera betra af honum og svo finnst mér maukin frá Gerber vera svo rosalega þunn. Gaf honum blandaða ávexti frá Gerber um daginn og leit á innihaldslýsinguna og þar var sykur í fjórða sæti, á undan sumum ávöxtunum! Æ mér finnst það ekki alveg málið, þó Magnús hafi nú bara fengið Gerber á sínum tíma. Þá var maður náttúrulega fátækur námsmaður og úrvalið mun minna en það er í dag. Ætli verði einhver munur á þeim bræðrum sem rekja má til mismunandi ungbarnamatarræðis? :P
Jæja, best að draga fram snakkið og nammið, júró fer að byrja. Áfram Eiríkur!! :D
1 ummæli:
mikið er gott að vita að ég er ekki sú eina sem er léleg húsmóðir, Kristján Geir fær einmitt nánast bara krukkumat (frá HIPP) :)
sjáumst á mánudaginn :)
kv Birta
Skrifa ummæli