Í dag fór ég og talaði við deildarstjóra skurðstofusviðs kvennadeildar og er skemmst frá því að segja að ég er komin með vinnu á skurðstofunni þar :) Ég mun sem sagt vinna sem skurðhjúkrunarfræðingur og stefnan væri þá að ég færi í diplómanámið þegar það verður kennt næst. Ég veit ekki alveg hvenær ég mun byrja en ég miða við haustið, en það veltur allt á hvernig gengur að fá dagvistun fyrir Hring. Mér leist rosalega vel á þetta og hlakka mikið til að byrja :) Ég þurfti að taka Hring með því ég fékk ekki pössun. Mér skildist á konunni að hún hefði leyft mér að fara að horfa á keisara ef ég hefði ekki haft hann með, því það var einn ákkúrat að fara að byrja. En ég á svo sem eftir að sjá nóg af þeim í framtíðinni :D
Fór annars á danssýningu í leikskólanum hjá Magnúsi í gær og sá öll börnin fædd 2002 dansa saman. Voða gaman og Magnús lifði sig mikið inní dansinn, tók þetta mjög alvarlega :Þ Af Hring er allt gott að frétta, hann er alltaf að stækka og er orðinn hálfgerður hlunkur. Silja María kom í heimsókn um daginn og hún er svo nett og fíngerð að Hringur, sem er yngri, var eins og risi til samanburðar :) Stærsta fréttin af honum er sú að það eru komnar tvær tennur í neðri góm! Eftir talsvert marga pirringsdaga og nætur þá eru þær loksins búnar að brjótast í gegn, eiga bara eftir að rísa. Hann er ekki enn farinn að velta sér, nú á sko að taka hann í stíft æfingarprógram, verst hvað hann er ósáttur á maganum. Alveg eins og Magnús að því leyti, enda velti hann sér mjög lítið minnir mig. Þeir eru líkir að mörgu leyti bræðurnir en samt ólíkir líka. Mér finnst Hringur vera værari og meiri dundari, getur setið heillengi á teppinu sínu að skoða dótið sitt. Þarf ekki að hafa mikið fyrir honum, nema auðvitað þegar hann er að taka tennur eða fær eyrnabólgu. En hann fékk fyrstu eyrnabólguna um daginn, stefnir í að hann verði eyrnabólgubarn eins og bróðir sinn :/
Annars á hún mamma afmæli í dag, til hamingju elsku mamma ! :D Ætlum að kíkja til hennar á eftir með pakka :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
til hamingju með nýju vinnunna :)
til lukku með vinnuna:) fljótafgreitt það!
Til hamingju með nýju vinnuna :) glæsilegt!
til hamingju með vinnuna.. líst vel á þetta hjá þér..
Til hamingju með nýju vinnuna ;)
Þú átt eftir að massa þetta heheh....
Skrifa ummæli