Þá er febrúarmánuður genginn í garð, tíminn flýgur áfram sem fyrr. Bjössi byrjaði í nýju vinnunni hjá Landsbankanum í dag og er því búinn í fæðingarorlofi í bili. Við gerðum nú ekkert markvert þennan mánuð, aðallega slakað á og knúsað Hring :)
Janúarmánuður endaði á sorglegum nótum. Hringur afi lést eftir að hann veiktist skyndilega. Hann var þó búinn að vera að glíma við alzheimer í nokkur ár og var orðinn langt leiddur af þeim sjúkdóm. Hvíldin var því að ég held honum kærkomin og okkur ættingjunum líka. Samt sem áður er alltaf erfitt að kveðja. Ég er viss um að hann sitji núna á góðum stað, laus við alla kvilla og sjúkdóma, og klappar Perlu sinni blítt. Blessuð sé minning hans.
Vil benda á rosalega fallegt ljóð sem Sigrún systir setti á síðuna sína.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Þetta er alltaf erfitt, þrátt fyrir allt. Samhryggist innilega. Knús til þín.
Samhryggist innilega Maja mín.
Knús og kossar...
Skrifa ummæli