þriðjudagur, 27. febrúar 2007

Rope yoga

Var að byrja í 8 vikna rope yoga námskeiði í rope yoga setrinu. Fer tvisvar í viku kl 6:15 og svo 8:50 á laugardögum. Ansi snemmt en það hlýtur að venjast. Líður voða vel núna eftir fyrsta tímann en ætli þreytan fari ekki að segja til sín. Búin að hella uppá te sem veitir mér vonandi smá koffín skot. Þetta reynir mikið á magavöðvana og styrkir þar af leiðandi bakið sem er ákkúrat það sem ég þarf á að halda fyrir nýju vinnuna á skurðstofunni :)

Magnús er lasinn heima núna, með 39 stiga hita og frekar vansæll greyið. Vona að hann sé ekki kominn með í eyrun enn eina ferðina en ef hann er enn með hita á morgun þá reynum við að fara með hann til Gests. Vona bara innilega að Hringur smitist ekki :/

mánudagur, 26. febrúar 2007

Ofvirk í eldhúsinu


Í gær voru það kanilsnúðar, í dag skonsur :Þ

fimmtudagur, 22. febrúar 2007

Myndir

Skelli hér inn þremur myndum af Hring sem ég tók á símanum áðan. Myndavélin okkar er biluð þannig að það koma ekki myndir á barnaland á næstunni.




laugardagur, 17. febrúar 2007

Namminamm


Uppáhalds maturinn hans Hrings þessa dagana er grænmetis lasagna frá Hipp. Svo finnst honum æði þegar ég stappa saman banana og avakadó :)
Áðan gaf ég honum lax í jurtasósu frá Nestlé, sem honum fannst gott. Eins og sjá má á þessum skrifum er ég ekki mjög dugleg að búa sjálf til mat fyrir hann. Ég er einfaldlega ekki svo myndarleg húsmóðir ;) Agalega þægilegt að grípa í krukkumatinn, þó hann sé dáldið dýr. Ég hef aðallega verið að kaupa lífrænt ræktaðan mat, mér finnst úrvalið vera betra af honum og svo finnst mér maukin frá Gerber vera svo rosalega þunn. Gaf honum blandaða ávexti frá Gerber um daginn og leit á innihaldslýsinguna og þar var sykur í fjórða sæti, á undan sumum ávöxtunum! Æ mér finnst það ekki alveg málið, þó Magnús hafi nú bara fengið Gerber á sínum tíma. Þá var maður náttúrulega fátækur námsmaður og úrvalið mun minna en það er í dag. Ætli verði einhver munur á þeim bræðrum sem rekja má til mismunandi ungbarnamatarræðis? :P

Jæja, best að draga fram snakkið og nammið, júró fer að byrja. Áfram Eiríkur!! :D

fimmtudagur, 15. febrúar 2007

Komin með vinnu

Í dag fór ég og talaði við deildarstjóra skurðstofusviðs kvennadeildar og er skemmst frá því að segja að ég er komin með vinnu á skurðstofunni þar :) Ég mun sem sagt vinna sem skurðhjúkrunarfræðingur og stefnan væri þá að ég færi í diplómanámið þegar það verður kennt næst. Ég veit ekki alveg hvenær ég mun byrja en ég miða við haustið, en það veltur allt á hvernig gengur að fá dagvistun fyrir Hring. Mér leist rosalega vel á þetta og hlakka mikið til að byrja :) Ég þurfti að taka Hring með því ég fékk ekki pössun. Mér skildist á konunni að hún hefði leyft mér að fara að horfa á keisara ef ég hefði ekki haft hann með, því það var einn ákkúrat að fara að byrja. En ég á svo sem eftir að sjá nóg af þeim í framtíðinni :D

Fór annars á danssýningu í leikskólanum hjá Magnúsi í gær og sá öll börnin fædd 2002 dansa saman. Voða gaman og Magnús lifði sig mikið inní dansinn, tók þetta mjög alvarlega :Þ Af Hring er allt gott að frétta, hann er alltaf að stækka og er orðinn hálfgerður hlunkur. Silja María kom í heimsókn um daginn og hún er svo nett og fíngerð að Hringur, sem er yngri, var eins og risi til samanburðar :) Stærsta fréttin af honum er sú að það eru komnar tvær tennur í neðri góm! Eftir talsvert marga pirringsdaga og nætur þá eru þær loksins búnar að brjótast í gegn, eiga bara eftir að rísa. Hann er ekki enn farinn að velta sér, nú á sko að taka hann í stíft æfingarprógram, verst hvað hann er ósáttur á maganum. Alveg eins og Magnús að því leyti, enda velti hann sér mjög lítið minnir mig. Þeir eru líkir að mörgu leyti bræðurnir en samt ólíkir líka. Mér finnst Hringur vera værari og meiri dundari, getur setið heillengi á teppinu sínu að skoða dótið sitt. Þarf ekki að hafa mikið fyrir honum, nema auðvitað þegar hann er að taka tennur eða fær eyrnabólgu. En hann fékk fyrstu eyrnabólguna um daginn, stefnir í að hann verði eyrnabólgubarn eins og bróðir sinn :/

Annars á hún mamma afmæli í dag, til hamingju elsku mamma ! :D Ætlum að kíkja til hennar á eftir með pakka :)

þriðjudagur, 6. febrúar 2007

fimmtudagur, 1. febrúar 2007

Þá er febrúarmánuður genginn í garð, tíminn flýgur áfram sem fyrr. Bjössi byrjaði í nýju vinnunni hjá Landsbankanum í dag og er því búinn í fæðingarorlofi í bili. Við gerðum nú ekkert markvert þennan mánuð, aðallega slakað á og knúsað Hring :)

Janúarmánuður endaði á sorglegum nótum. Hringur afi lést eftir að hann veiktist skyndilega. Hann var þó búinn að vera að glíma við alzheimer í nokkur ár og var orðinn langt leiddur af þeim sjúkdóm. Hvíldin var því að ég held honum kærkomin og okkur ættingjunum líka. Samt sem áður er alltaf erfitt að kveðja. Ég er viss um að hann sitji núna á góðum stað, laus við alla kvilla og sjúkdóma, og klappar Perlu sinni blítt. Blessuð sé minning hans.
Vil benda á rosalega fallegt ljóð sem Sigrún systir setti á síðuna sína.