Aldeilis stutt í jólin! Allt að verða reddí á þessum bæ, búið að versla allar gjafir (Bjössi er í þessum skrifuðu orðum að versla mína gjöf, sem er síðasta gjöfin) og jólakortin farin í póst. Nú bíður maður bara eftir að hátíðin gangi í garð. Á morgun er hin árlega skötuveisla með systkinum mömmu, en mamma ákvað að hafa hana á morgun í stað þorláksmessu. Hún kom og passaði Hring aðeins í dag, var þá nýkomin úr fiskbúðinni að kaupa skötuna og hún gjörsamlega angaði af skötulykt :Þ Hlakka mikið til, alltaf viss stemning að fá sér skötu. Bjössi er meira að segja búinn að lofa að fá sér bita enda ekki annað hægt í þessari vestfirsku fjölskyldu :)
Magnús er orðinn verulega spenntur og telur niður dagana í jólin, það verða heldur ekki amaleg jól hjá honum, hann fær að opna pakkana hans Hrings líka! Sem sagt nóg að gera hjá honum :)
Gleðileg jól allir saman! :D
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
skrítnir þessir vestfirðingar híhí :) annars læt ég mig hafa það og mæti í svona veislu án þess að borða skötuna.. en ég smakkaði í fyrsta skipti einn munnbita í fyrra til að sanna að þetta væri ekki gott og jú viti menn, þetta er ekki gott! Ég held maður þurfi að hafa borðað þetta frá blautu barnsbeini til að getað fílað þennan mann! Þannig að Bjössi, ekki gera þér væntingar (sem ég held þú hafir ekki) haha :)
fílað þennan mat en ekki mann hahaha :P
Hehe, skötumaðurinn ógurlegi... ég byrjaði nú ekki að borða skötu fyrr en um tvítugt, fannst hún alltaf ógeð, held þetta sé svona aquired taste ;)
Skrifa ummæli