föstudagur, 23. mars 2007

Thank god!

Þetta var sem betur fer bara sólarhringspest, er öll sprækari í dag eftir góðan nætursvefn. Gærkvöldið endaði á að ég skilaði pizzunni góðu á haf út og þar með var það búið :)

Plön helgarinnar eru óráðin, Magnús fer í pössun til afa síns í sveitina á morgun og gistir þar yfir nóttina. Það finnst honum ekki leiðinlegt, enda á hann 10 hunda og álíka marga hesta þannig að það er nóg að gera að hjálpa afa með það allt saman :)

Hef svo sem ekki mikið að segja, vildi bara láta vita að heilsan er komin í lag :)

fimmtudagur, 22. mars 2007

:(

Hiti
Uppgangur
Beinverkir
Hausverkur
Almenn vanlíðan á háu stigi

Vill ekki einhver vorkenna mér :/

þriðjudagur, 13. mars 2007

Akureyri

Akureyrarferðin var mjög fín hjá okkur Bjössa. Flugið gekk vel fyrir utan ágætis ókyrrð þegar við lækkuðum flugið inn Eyjarfjörðinn, mér var á tímabili hætt að lítast á blikuna :/ Á föstudeginum tókum við smá tjútt, byrjuðum á að borða á Strikinu þar sem við fengum fínan mat. Enduðum svo kvöldið á einhverjum klúbbi þar sem mjög fáir voru og við vorum lang elst, hehe. Laugardagurinn fór í tjill fram eftir degi, röltum um bæinn og kíktum í einhverjar búðir. Fengum okkur ljúffengar pizzur á Bautanum og skelltum okkur í bíó kl 6 á Norbit. Hún var nú frekar slök, maður var farin að bíða eftir að hún tæki enda, en maður gat nú eitthvað hlegið að henni ;) Um kvöldið fórum við svo að borða á La Vita e Bella. Þar fékk ég mér dýrindis forrétt sem samanstóð af hvítlaukssteikum portobello svepp með salati, mmmm...þvílíkt gott. Svo fékk ég mér lambakjöt og rauðvín með, voða gott allt saman. Eftir matinn fórum við bara á hótelherbergið og horfðum á sjónvarpið og fórum snemma í háttinn. Flugið heim gekk svo bara vel, smá ókyrrð hér og þar en ekkert miðað við ókyrrðina á leiðinni til Akureyrar.

Allt gekk vel hjá mömmu og pabba að passa. Hringur var dáldið rellinn enda að veikjast drengurinn. Fékk hita á sunnudagseftirmiðdaginn sem reyndar var horfinn daginn eftir. Hann er enn með ljótan hósta og nefrennsli. Svo kom morgungrauturinn uppúr honum áðan, vona að það sé ekki merki um gubbupest :/

Myndavélin okkar er víst bara ónýt, allavega of dýrt að gera við hana þannig að við þurfum sennilega að kaupa nýja :/ Læt hér fylgja nokkrar af Hring af símanum.



Ps. Andrea Gylfa bara búin að láta rétta tennurnar! Læt hér að því tilefni fylgja eina af mér með pre Andreu tennur sem ég keypti í Tiger :D


fimmtudagur, 8. mars 2007

8 mánaða skoðun

Nýjustu tölur eru þær að Hringur er orðinn 9.4 kg og 75 cm á lengd :)Hann er því tveimur staðalfrávikum fyrir ofan meðaltal í lengd og einu í þyngd, alveg eins og Magnús var. Annars er allt er í orden hjá honum og er flottur strákur. Hann er samt ekkert að flýta sér að gera hlutina, rólegur eins og bróðir sinn :) En það eru alltaf framfarir og það er það sem skiptir máli.
Nú má ég fara að prófa að gefa honum fjölbreyttari álegg á brauð, hefur bara fengið smjör og lifrakæfu hingað til. Prófaði að gefa honum brauð með smjör og osti áðan og honum fannst það mjög gott. Svo kannski kaupir maður mysing og prufar það. Hann er enn aðallega að borða krukkumatinn í kvölmatinn en ég reyni að gefa honum það sama og við ef það er eitthvað við hæfi í matinn. Vorum með soðna ýsu og kartöflur um daginn og fannst honum það mjög gott.
Ef einhverjar hjúkkur lesa þetta blogg þá bað hjúkkan í skoðuninni mig um að láta það berast að það vantar hjúkkur á heilsugæsluna árbæ, og að mér skilst víðar, ef einhver hefur áhuga á því :)

miðvikudagur, 7. mars 2007

Dónóstubbar


Var ekki alltaf talað um að Tinky Winky væri gay? Þetta myndband staðfestir það :D Takið líka eftir hendinni á Dipsy :O

Snillingafimi

Í gær byrjaði ég með Hring í snillingafimi í Hreyfilandi. Með okkur á námskeiðinu eru þær Birta og Súsanna og guttarnir þeirra, þeir Kristján Geir og Knútur. Mér leist bara vel á þetta, Hringur var að vísu dáldið pirraður inn á milli en það hlýtur að lagast, ekki vanur svona miklu áreiti. Svo fattaði ég að hann var nýbúinn að borða sem er kannski ekki sniðugt þegar maður er að hnoðast svona og verið að hvolfa manni og ég veit ekki hvað og hvað. Hann var gjörsamlega búinn á því eftir tímann og sofnaði um leið og ég lagði hann í rúmið heima :) Ég var nú ansi uppgefin líka, hafði verið í rope yoga kl 6 um morgunin og svo þetta sem reyndi nú eitthvað á, allavega varð ég ansi sveitt!
Á föstudaginn ætlum ég og Bjössi svo að skella okkur til Akureyrar í boði mömmu og pabba. Fljúgum kl 18:30 og komum heim um kl 14 á sunnudag. Mamma og pabbi ætla að flytja inn til okkar á meðan og vera með strákana :) Hlakka mikið til, fínt að fá smá breik bara við tvö og hlaða batteríin. Smá kvíði líka yfir að fara frá Hring svona í fyrsta sinn yfir nótt en ég treysti nú engum betur en mömmu og pabba til að sjá um hann :)

föstudagur, 2. mars 2007

Nýji bíllinn

Fjárfestum í þessum fína jeppling í gær, Toyota Rav-4 árgerð 2004. Erum hæstánægð með hann, þvílíkur munur frá hinum, sem mun nú fá það hlutverk að vera vinnubíllinn hans Bjössa :)