mánudagur, 15. janúar 2007

laugardagur, 13. janúar 2007

Synirnir sofandi



Þessar eru teknar í kolniðamyrkri með nýja símanum, gamli síminn hefði ekki getað þetta :) Ef þið klikkið á myndina þá kemur hún stór, fín gæði miðað við síma :D

Nýr sími, vei vei!!


Skellti mér á nýjan síma áðan, Samsung D900 :D Alveg eins sími og Sigrún systir á, smitaðist alveg :) Helsti kostur þessa síma er myndavélin, en hún er 3 megapixel sem er með því mesta sem gerist í farsímum í dag ;) Verð því kannski eitthvað duglegri að senda inn myndir, verst að það kostar 29 kr að senda hverja mynd :/

mánudagur, 8. janúar 2007

Eminem

Hvað ætli það merki að dreyma að maður sé að tala við Eminem í síma?? Tek það fram að ég er ekki aðdáandi, né hef ég séð myndband með honum nýlega eða heyrt á hann minnst, þannig að þetta hlýtur að merkja eitthvað voða mikilvægt :-O

fimmtudagur, 4. janúar 2007

How to make a baby

Hér má sjá mjög svo ítarlegar leiðbeiningar um hvernig börnin verða til (smella á mynd til að stækka) :) Bíllinn sem parið fer í á fæðingardeildina er bestur, happy happy joy joy :D

Rice pudding


Myndskilaboð, originally uploaded by Maria Haf.

Þetta er í algjöru uppáhaldi hjá Hring þessa dagana, maður hefur vart undan að skófla þessu upp í hann :)

þriðjudagur, 2. janúar 2007

Gleðilegt nýtt ár

Áramótin voru róleg og fín hjá okkur, vorum bara heima með strákana. Elduðum innbakaðar lambalundir sem brögðuðust mjög vel :) Magnús var mjög spenntur fyrir þessu öllu saman en ég hafði áhyggjur af því að hann gæti ekki vakað svona lengi sem reyndist rétt. Þegar skaupið var komið vel af stað bað hann um að fá að fara að sofa, greinilega orðinn örmagna af þreytu. Við reyndum að vekja hann rétt fyrir miðnætti en það var ekki séns. Hringur svaf líka í gegnum þetta allt saman og rumskaði ekki :) Þannig að við skötuhjúin stóðum bara tvö á svölunum og skáluðum í freyðivín þegar nýja árið gekk í garð :)
Í dag fórum við með Hring í 6 mánaða skoðun og er guttinn orðinn 8.395 gr og 71 cm :) Hann fékk sprautu og grét smá enda svíður þeim víst undan þessu efni.
Hann er ekki enn farinn að snúa sér en vindur stundum upp á efri part líkamans. Hann er alltaf að verða stöðugri við að sitja en maður þarf samt að halda í hann. Allt sem hann fær í hendurnar fer beinustu leið uppí munn :)
Hann er alltaf jafn góður og yndislegur strákur og voða gaman að fylgjast með honum þessa mánuðina því nú eru svo miklar þroskabreytingar í gangi.
Nú er Bjössi kominn í fæðingarorlof og verður út þennan mánuð, gaman gaman :)