Ég er farin að halda að ég eigi bara að halda mig innandyra þessa dagana. Ég virðist laða að mér hið furðulegasta fólk. Hér koma dæmin:
1. Bykoperrinn sem ég bloggaði um fyrir skemmstu.
2. Barnaperrinn sem braust inní blokkina og reyndi að komast inní íbúðina.
3. Ég fór á djammið á sunnudaginn með Eddu vinkonu. Við enduðum djammrúntinn á Ölstofunni þar sem við hittum ungan mann sem fór að spjalla við okkur og settumst við saman inn. Okkur leist vel á hann í fyrstu, huggulegur ungur piltur og skemmtilegur þar að auku (tek það fram að Edda er á lausu). Þegar líður á nóttina verður gaurinn dáldið fullur og við svona hættum að fíla hann og ákváðum bara að fara að koma okkur. Ég man nú ekki alveg hvað ég sagði við gaurinn en allt í einu snappar hann svona líka svakalega og nánast öskrar á mig "ert´ekki að fokking djóka í mér?, ertu búinn að vera að draga mig á asnaeyrunum síðustu tvo tímana!" Mér brá nú heldur betur í brún og reyndi að róa hann en það gekk ekki svo að við flúðum út í ofboði og náðum í leigubíl. Ég hélt í alvöru að gaurinn ætlaði að berja mig!
4. Nú kemur rúsínan í pylsuendanum. Ég var í göngutúr um hverfið með Hring áðan og skyndilega vindur sér upp að mér gömul tannlaus kona sem fer að röfla um ljósleiðara og skaðsemi loftneta!!
Hvað verður það næst??
þriðjudagur, 29. maí 2007
föstudagur, 25. maí 2007
Magnús Ari 5 ára
miðvikudagur, 23. maí 2007
Hemmi snillingur
Hemmi bróðir er góður í photoshop og er með húmorinn í lagi eins og sést á þessari færslu þar sem hann hefur photoshop-að sig inná nokkur eðal plötuumslög :D
Lok, lok og læs
Ég er búin að læsa barnalandssíðunni þannig að ekki hika við að fá lykilorðið ;) Opnaði líka fyrir vefdagbókina og ætla að reyna að vera duglega að pósta inn fréttum þar.
föstudagur, 18. maí 2007
Munið að læsa!
Aðfaranótt miðvikudags vakna ég upp við það að einhver tekur í húninn á hurðinni að íbúðinni og reynir að opna. Ég fæ alveg fyrir hjartað og svo eftir smá stund heyri ég nágrannastelpuna öskra hátt og heyri ég að það er skelfing í röddinni. Ég sit sem lömuð og veit ekki hvað ég á að gera. Ég heyri svo útidyrahurðina niðri skellast og fer út í glugga en sé engann koma út. Eftir skamma stund koma tvær löggur og fjarlægja mann sem stendur í anddyrinu. Stuttu seinna koma svo tvær aðrar löggur út úr blokkinni. Ég var alveg með hjartað í buxunum af hræðslu og vakti Bjössa, sem svaf þetta allt af sér. Ekkert smá óþægilegt að vakna við það að einhver sé að reyna að komast inn til manns :/
Næsta dag kemur konan af neðri hæðinni að tala við mig og segir mér að þessi maður hafi fyrst farið inn til þeirra, því þar var ólæst. Þau vakna við það þegar hann er að labba út úr íbúðinni. Þá hafði hann verið inní herbergi sonar þeirra og skilið þar eftir sig bjórglas. Svo sjá þau að maðurinn fer út úr blokkinni en kemur aftur og einhver virðist hleypa honum inn því þau heyra að hann dinglar í einhverri íbúð. Þá reynir hann að opna inn til okkar en fer svo inn til nágrannakonunnar sem er með ólæst. Hún nær að ýta honum út og hringir á lögguna. Það sem sú á neðri hæðinni segir svo er það sem sjokkeraði mig mest, þessi maður er barnaperri og býr hér í hverfinu!! Hún fékk það uppúr löggunni en þeir geta ekki sagt hvar hann eigi heima nákvæmlega.
Mér finnst þetta svo ógeðslegt að ég get ekki lýst því, sem betur fer virðist hann ekki hafa gert neitt við strákinn á neðri hæðinni, og hann vaknaði ekkert við hann. Ég er bara guðslifandi fegin að hafa læst þetta kvöld því við eigum það sko til að gleyma því. Ég hefði fengið taugaáfall hefði ég vaknað við einhvern mann að labba inní íbúðina :/
Svo finnst mér að það mætti alveg ræða svona í fréttum, eins og á mbl.is til dæmis. Brýna fyrir fólki að læsa alltaf útidyrunum hjá sér og vera ekki að hleypa neinum inní stigagangana sem eiga ekki erindi þangað. En svona mál virðast greinilega ekki vera neitt merkileg, sá frétt á vísi.is í gær um mann sem stal gólfkylfu í verslun. Hverjum er ekki sama um það? Svo veit ég ekki hvað var gert við perrann, ætli hann hafi ekki bara verið látinn sofa úr sér og sleppt daginn eftir :/
Allavega varð þetta til þess að ég hef mun betri gætur á Magnúsi þegar hann er að leik hér fyrir utan. Svo mun ég ávallt læsa útidyrahurðinni héðan í frá, maður er greinilega hvergi óhulltur :/
En að öðru, héðan er allt gott að frétta. Ég og Hringur erum alltaf eitthvað að snúast hingað og þangað á daginn og höfum það mjög gott. Mér er farið að kvíða dáldið fyrir að setja hann til dagmömmu, sem verður í ágúst. Er sko ekkert komin með leið á að vera heima með hann enda er hann svo yndislegur og góður og væri ég alveg til í að vera lengur heima. En maður þarf víst á laununum að halda, þó þau mættu vera betri ;) Hringur er kominn með 4 tennur núna, tvær uppi og tvær niðri og eru tvær aðrar á leiðinni uppi. Hann hefur verið að taka pirringsköst við og við en ekkert alvarlegt. Hann fer alltaf hraðar og hraðar um á rassinum og spænist hér um öll gólf í leit að snúrum og öðru góðgæti til að japla á. Hann er aðeins byrjaður að reyna að klappa og veifa og er farinn að segja "datt" :)
Ég og Bjössi fórum í bíó í gærkvöldi á myndina Zodiac og mæli ég með henni, dáldið löng en mjög góð ;)
Í fyrramálið kl 11 ætlum ég og Magnús svo að sjá Skoppu og Skrítlu í þjóðleikhúsinu og er mikil spenna hér á bæ fyrir það :) Svo er Magnús farinn að telja niður í afmælisdaginn sem er eftir viku :)
Segjum þetta gott í bili!

miðvikudagur, 16. maí 2007
sunnudagur, 13. maí 2007
sunnudagur, 6. maí 2007
miðvikudagur, 2. maí 2007
Kynferðisleg áreitni í Byko!
Í morgun fórum ég og Herborg í Byko til að skoða baðinnréttingar og flísar. Ég vildi forvitnast um hvað væri langur afgreiðslutími á innréttingunum svo að við settumst niður við eitt afgreiðsluborðið í mesta sakleysi og biðum eftir afgreiðslu. Eftir smá stund kemur askvaðandi maður milli fertugs og fimmtugs ef ég á að giska. Hann virkar voða hress og byrja ég á að spyrja um afgreiðslutímann. Þá segir hann "af hverju ertu ekki búin að hringja í mig?" Ég náttúrulega fer hjá mér og þá segir hann "þú ert svo sæt þegar þú roðnar". Ég fer þá enn meira hjá mér og segi að það sé nú ekki annað hægt þegar einhverju svona er slengt framan í mann. Þá fer hann að tala um afgreiðslufrestinn, svo leiðist talið út í að hann spyr hvar ég eigi heima og nr hvað í Hraunbænum það sé (með flagararöddinni) og ég spyr hvort það sé nauðsynlegt að gefa það upp. Hann hefði kannski bara mætt heim til mín ef ég hefði gefið það upp :/ Svo fer hann að tala um að ég geti fengið innréttinguna fyrr "af því að ég er komin svo nálægt honum" og rúsínan í pylsuendanum er þegar hann bendir á Hring og segir "er hann ekki líkur mér?" íííeeewww!!!! Hann lét svona eins og hann væri viðhaldið mitt *æl*
Ég er eiginlega bara í sjokki eftir þetta, virkilega ósmekklegt og ófagmannlegt að koma svona fram við viðskiptavin! Spurning hvort maður eigi að senda mail á starfsmannastjóra??

Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)