mánudagur, 30. apríl 2007

Prakkarar

Áðan var Magnús úti að leika við einhvern prakkara sem býr hér nærri. Svo komu þeir aðeins inn og voru eitthvað að sniglast inní herberginu hans Magnúsar og fóru svo aftur út. Svo leið smá tími og þeir komu aftur inn og Magnús sagðist vera að skila einhverjum pening sem hann hafði náð í. Eitthvað var hann grunsamlegur og við fylgdumst með þeim út um gluggann. Það læddist að mér sá grunur að þeir væru að fara út í búð og það reyndist rétt. Þegar við sáum þá stefna í þá áttina stökk Bjössi út og rétt náði að stoppa þá við umferðargötuna. Magnús varð strax mjög skömmustulegur og sagði fyrirgefðu aftur og aftur með tárin í augunum. Vissi greinilega vel að hann væri að gera eitthvað sem hann má ekki. Þeir höfðu þá farið í 11-11 þar sem prakkarinn setti nammi í poka og sótti oststykki en þegar kom að því að borga þá voru þeir ekki með nægan pening. Þá ákváðu þeir að skjótast í herbergið hans Magnúsar og næla sér í nokkra hundraðkalla úr bauknum og fara svo að borga fyrir góssið :/ Magnús var nú tekinn á teppið fyrir þetta og skammaðist hann sín mikið og ætlar sko aldrei að gera svona lagað aftur.
Mér finnst svo óþægileg tilhugsun að þeir tveir hafi verið að fara einir yfir umferðargötu og þvælast í gegnum bílaplanið þarna því þar er talsverð umferð :/ En sem betur fer fór þetta vel og drengurinn búinn að læra sína lexíu ;)

miðvikudagur, 25. apríl 2007

10 mánaða skoðun

Nýjustu tölur eru þær að kappinn er orðinn 9850 gr og 77 cm :) Annars var það engin sprauta í þetta sinn, bara læknisskoðun. Held að læknirinn sem skoðaði hann ætti nú bara að fara að íhuga að fara á eftirlaun, hann var ansi skjálfhentur. En hann kom bara vel út úr skoðuninni, þurfum bara að vera dugleg að örva grófhreyfingarnar hjá honum, hann stendur t.d. voða stutt í fæturnar í einu. En hann er aðeins farinn að mjaka sér áfram á rassinum ef hann sér eitthvað mjög spennandi. Mest spennandi finnst honum ef maður leggst á gólfið og byrjar að lesa bók í smá fjarlægð, þá er hann fljótur að koma :)
Það gekk annars vel að skrifa undir kaupsamninginn í gær og er stefnt á að við fáum afhent eigi síðar en 20.júní :) Flytjum þó ekki inn alveg strax, þurfum að mála íbúðina og svo ætlum við að rífa allt út af baðherberginu og fá allt nýtt þar inn. Annað þarf ekki að gera, eldhúsið var tekið í gegn fyrir 2 árum og er voða fínt. Læt hér fylgja eina mynd af því :)

þriðjudagur, 24. apríl 2007

Heilsan að skána

Heilsan er öll að koma til, er sprækari í dag en í gær. Átti að fara með Hring í 10 mánaða skoðun áðan en frestaði henni til morguns. Ég verð samt að skreppa aðeins út á eftir, því við skrifum undir kaupsamninginn á nýju íbúðinni í dag, jííhaa :D Hlakka til að vita hvenær við fáum afhent. En fyrir þá sem ekki vita þá erum við í leiguíbúð eins og er en festum kaup á íbúð hér í Hraunbænum fyrir skömmu. Fyrir utan það að hér er fasteignaverð mjög sanngjarnt að þá líður okkur mjög vel hér og ákváðum því að halda okkur við Árbæinn :) Ég er farin að sjá fyrir mér að verða svona soccer-mom, báðir strákarnir að spila með Fylki og ég að hvetja á áhorfendapöllunum (antisportistinn sjálfur), hihi :) Spurning hvort strákarnir verði antisportistar eins og foreldrarnir? En ég vil endilega að þeir stundi íþróttir og mun eindregið hvetja þá til þess.
Annars var ég að lesa bloggið hennar Ilmar, sem var með mér í hjúkrun og það rann upp fyrir mér að ég hef ekki tekið neina afstöðu í kosningarmálunum. Hef ekki komið mér í það að kynna mér stefnumál flokkanna. Spurning um að fara að gera það enda stutt í kosningar!
Læt hér að lokum fylgja yfirlitsmynd af nýju íbúðinni ;)

laugardagur, 21. apríl 2007

Hvað er í gangi?

Fyrir nákvæmlega mánuði síðan var ég lasin, með gubbupest, hita og beinverki. Núna er sama sagan, ég er með hita, beinverki og ógleði (hef sem betur fer ekki gubbað). Er ekki alveg að skilja þetta, ég verð vanalega sjaldan veik, fyrir utan þessar árlegu kvefpestir. Og nú er ég komin með hitapest í annað sinn á einum mánuði :/ Þetta varð til þess að ég komst ekki út að borða og að tjútta með hjúkkubekknum mínum, sem mér var farið að hlakka svo til :( Annars vona ég að þessi veikindi líði bara fljótt hjá. Ef ég fæ aftur svona pest fljótlega þá fer ég sko til læknis, getur ekki verið eðlilegt.

miðvikudagur, 18. apríl 2007

Magnús stærðfræðiséni

Magnús borðar spagetti ber að ofan :)

Magnús fór í dag í talþjálfun þar sem var verið að greina hvernig málþroskinn væri hjá honum og framburður. Málþroskinn er alveg í meðallagi miðað við hans aldur en við þurfum að æfa hann í -r og -s hljóðum. Svo þurfti hann líka að reikna nokkur dæmi og stóð hann sig afburða vel á því sviði að sögn konunnar, hún hafði varla séð annað eins :) En hann hefur mikinn áhuga á tölum, þekkir alla tölustafina og tveggja stafa tölur líka. Höfum nú ekki verið að láta hann reikna mikið en eitthvað smá og hann var fljótur að ná því. Svo er hann snillingur í samstæðuspili, vonlaust að vinna hann í því. Hann er því greinilega með gott minni :)
Smá mont frá mömmunni ;)

þriðjudagur, 3. apríl 2007

Gleðilega páska !

Nú styttist í páskahelgina og ætlum við fjölskyldan að skella okkur uppí bústað. Hlakka mikið til að komast aðeins úr bænum, borða góðan mat og úða í mig páskaegg :)
Fór í saumaklúbb hjá bekknum í gær, þar var fjölmennt og mikið hlegið. Alltaf gaman að umgangast hressar hjúkkupíur :) Þar voru þrjár sem voru nýkomnar heim eftir langa dvöl í Afríku og fengum við að heyra nokkrar skemmtilegar sögur þaðan.
Í dag fórum ég og Hringur og hittum þá Knút Þór, Kristján Geir, Sævar Inga og mömmur þeirra. Við byrjuðum á góðum göngutúr um Grafarvoginn og enduðum svo heima hjá Súsönnu þar sem við gæddum okkur á ýmsu gúmmulaði :)

P.s. Við erum búin að fjárfesta í nýrri myndavél þannig að það eru komnar inn myndir á barnaland.